logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Leikfélag Mosfellssveitar

Leikfélagið starfrækir leikhús í bænum allt árið um kring og eru yfirleitt settar upp tvær veglegar leiksýningar á leikhúsárinu. 

Leikfélagið tekur þátt í fjölda uppákoma og menningarviðburða í Mosfellsbæ, s.s. þrettándabrennu, dagskrá á sumardaginn fyrsta, dagskrá á 17. júní, jólatrésskemmtunum og fleira. Leiklistarskóli er starfræktur fyrir börn og unglinga á sumrin.

Árlega vinnur leikfélagið að sameiginlegri dagskrá og sýningum þeirra aðila er starfa undir merkjum Listaskóla Mosfellsbæjar.


Hafðu samband

Aðsetur: Bæjarleikhúsinu v/Þverholt.

Sími: 566-7788

Formaður: Ólöf A. Þórðardóttir.

Netfang:   leikmos@gmail.com 

Facebook: Leikfélag Mosfellssveitar

Saga Leikfélagsins

Leikfélagið hefur verið starfrækt síðan 8. nóvember 1976 og hefur sett svip sinn á menningarlíf í sveitarfélaginu allt frá stofnun. Leikfélagið setur reglulega upp sýningar í bæjarleikhúsinu sem eru jafnan vel sóttar. Auk þess stendur leikfélagið fyrir barna- og unglinganámskeiðum reglulega og hafa þau notið mikilla vinsælda.

Til gamans má nefna að Leikfélag Mosfellssveitar var útnefnt sem bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2015 við hátíðlega athöfn á bæjarhátíðinni Í túninu heima.  Leikfélag Mosfellssveitar hefur áður verið tilnefnt Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar en það var á 20 ára starfsafmæli félagsins árið 1996.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira