logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

4. maí, hefst kennsla samkvæmt stundaskrá í Listaskóla Mosfellsbæjar.

30.04.2020 17:57
Kæru nemendur/forráðamenn. Frá og með næsta mánudegi, 4. maí, hefst kennsla samkvæmt stundaskrá í Listaskóla Mosfellsbæjar. Hér fyrir neðan eru nokkrar tilvitnanir frá yfirvöldum og svo skipulag skólastarfsins: - Áfram verða sóttvarnarráðstafanir í skólum, sem og annars staðar, og skólar fylgja viðbragðsáætlunum sínum varðandi mögulegt smit. Neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 er áfram í gildi. Linkur og slóð á síðuna er hér: Spurt og svarað um tónlistarskóla / mrn.is/skolastarf Tónlistarskólar munu starfa með hefðbundnum hætti frá og með 4. maí nk., en þar verða áfram í gildi sóttvarnaráðstafanir og takmarkað aðgengi fullorðinna að byggingum. Mega nemendur sækja einkatíma í tónlistarskólum, að teknu tilliti til hreinlætis og fjarlægðar? Já, nemendur á leik- og grunnskólaaldri geta sótt tíma án takmarkana. Nemendur eldri en 16 ára og kennarar þurfa að virða reglur um 2 metra fjarlægð milli fólks. Ef forráðamenn eru með í tímum þarf að virða 2 metra reglu milli kennara og forráðamanna. Mega nemendur sækja hóptíma í tónlistarskólum, að teknu tilliti til hreinlætis og fjarlægðar?Já, nemendur á leik- og grunnskólaaldri geta sótt tíma án takmarkana. Kennarar og nemendur eldri en 16 ára þurfa að virða reglur um 50 fullorðna einstaklinga í sama rými og um 2 metra fjarlægð milli þeirra. Skipulagið í Listaskóla Mosfellsbæjar í maí 2020 verður svona: Kennslufyrirkomulag og vormat • Kennsla verður samkvæmt stundaskrá 4. maí – 20. maí. • Vorpróf, tónleikar og formleg skólaslit falla niður. • Vormat verður afhent í lok síðustu kennslustundar, dagana 18. – 20. maí. Einkunnir fyrir stigspróf og áfangapróf verða sendar í pósti um miðjan júní. Próf og kennslumat • Nemendum gefst kostur á að taka Miðpróf í tónfræðagreinum 14. maí eða 19. maí, eða fresta því til loka september (skipulag frá prófanefnd). • Þeim nemendum, sem ljúka vilja stigs- eða áfangaprófum, býðst kennsla dagana 25. – 27. maí. • Áfangapróf og stigspróf fara fram fimmtudaginn 28. maí, nema stigspróf yngri nemenda, sem flest verða dagana 18-20. maí. Bestu kveðjur og gleðilegt sumar, Atli Guðlaugsson, skólastjóri
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira