Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, september, október.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2020
febrúar, mars, apríl, júní, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, desember.
2018
janúar, mars, apríl, október, desember.
2017
2016
Listaskólinn heldur 25 tónleika á aðventunni
30.11.2021 14:13Stór þáttur í námi nemenda Listaskólans er að koma fram á tónleikum og framundan eru 25 nemendatónleikar Listaskólans á aðventunni. Í ljósi smitvarna verður skipulagi tónleika háttað þannig að 8-14 börn koma fram á hverjum tónleikum og mega 2 gestir fylgja hverju barni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá tónleikadagatal og þar er skipulag tónleika eftir kennurum.
Staðsetningar tónleikanna eru mismunandi og breytilegir litir á tónleikadagatali sýna mismunandi staðsetningar.
Vonandi náum við að halda þessu skipulagi en það veltur þó alltaf á stöðunni hverju sinni, þ.e. hvernig fjöldatakmörkunum, sóttvörnum og fleiru því tengdu er háttað.