Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, september, október.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2020
febrúar, mars, apríl, júní, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, desember.
2018
janúar, mars, apríl, október, desember.
2017
2016
Sóttvarnarreglur
24.08.2021 17:30Nú er skólaár Listaskólans hafið og kennarar eru að skipuleggja stundaskrár nemenda í samráði við nemendur, foreldra og annað frístundastarf. Áfram þurfum við að huga að sóttvarnarreglum og biðjum við foreldra að minna börnin á handþvott þegar þau koma í skólann og eins er spritt á göngum og í stofum.
Gildandi sóttvarnarreglur fyrir tónlistarskóla má sjá hér:
- Nemendur á grunnskólaaldri eru undanþegnir 1 metra fjarlægðarreglu og grímuskyldu, en þau skulu hvött til fyllstu varkárni og persónulegra sóttvarna.
- Leyfilegur hámarksfjöldi starfsfólks og nemenda er 200 í rými.
- Þegar starfsfólk og nemendur fæddir árið 2005 og fyrr ná ekki að virða nálægðarmörk (1 m) ber að nota andlitsgrímu.
- Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfsfólk.
- Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi eiga að sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum.
- Hvatt er til grímunotkunar gesta í skólabyggingum, en skólum er jafnframt heimilt að takmarka enn frekar komu gesta í skólabyggingar.
- Um viðburði á vegum skóla gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun fullorðinna.