logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Sellónám við Listaskóla Mosfellsbæjar

01.09.2021 12:21

Nú er skólastarf Listaskólans komið á fullt og full innritað á nánast öll hljóðfæri sem í boði er að læra á við skólann. Einungis eru laus örfá pláss í sellónám. Þeim sem áhuga hafa á að nýta þessi pláss fyrir börnin sín er bent á að hafa samband við skrifstofu skólans sem allra fyrst. Börn á biðlistum skólans ganga fyrir um plássin. Hér má sjá kynningu um Celló og cellónám við Listaskolann:

Sellóið tilheyrir fjölskyldu strengjahljóðfæranna og hefur sömu lögun og fiðlan. Sellóið kom fyrst fram um 1600 og hefur síðan í meginatriðum verið óbreytt. Til eru selló í mörgum mismunandi stærðum og getur hljóðfærið þannig „vaxið með barninu“. Listaskóli Mosfellsbæjar býður selló til útleigu gegn vægu gjaldi.

Löngum hefur verið rætt um að ekkert þroski tóneyra jafn mikið og nám á strengjahljóðfæri þar sem nemandi þarf að leggja sig mjög fram í hlustun við að leita eftir hreinum tón en flest önnur hljóðfæri eru uppbyggð þannig að „ýtt er á ákveðna takka“ og réttur tónn fæst þannig.

Sellókennari Listaskólans er Kristín Lárusdóttir sem hefur áralanga kennslureynslu og hefur verið mjög virk í tónlistarlífinu bæði sem einleikari og sem meðleikari í mörgum og mjög fjölbreyttum tónlistarhópum og verkefnum. Kristín býður bæði upp á hefðbundna sellókennslu en hún er einnig menntuð sem Suzukikennari.

Tvær leiðir eru í boði í Sellónámi fyrir byrjendur:

- Suzukikennsla: Þar læra nemendur að leika eftir eyranu með stöðugri hlustun á námsefnið og hentar þeim vel að byrja ung. Nótnalestur bætist svo við síðar. Foreldrar fylgja nemandanum í tímana og æfa með þeim heima og felst námið bæði í einkatímum (30mín. 1x í viku) og hóptímum (aðra hverja viku).

- Hefðbundin kennsla: Nótnalestur kemur strax inn en nemendur læra þó einnig að leika eftir eyranu. Nemendur mæta í einkatíma 2x í viku 30 mín. í senn. Ýmislegt fleira má nefna og leggur Kristín mikið upp úr því að byggja upp jákvætt hugarfar og hvatningu. Börnin fá þjálfun í framkomu með því að koma fram á tónleikum frá því fyrsta, leik og gamansemi er flettað inn í kennsluna og stuðst meira við herminám fremur en útskýringar til að ná fram betri skilningi hjá börnunum. Boðið er upp á foreldrafræðslu í byrjun náms.

Nánar um Suzukiaðferðina

YouTube myndbönd sem sýna fjölbreytileika sellósins:

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira