logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Kennt verður í Listaskólanum frá kl. 13:00

07/02/22
Skólahald var fellt niður í dag vegna óveðursins sem gekk yfir landið í nótt. Það snjóaði ekki eins mikið á höfuðborgarsvæðinu í nótt eins og búist var við, þar sem hiti var nokkuð yfir frostmarki. Þess vegna eru flestar stofnæðar og tengibrautir færar og einnig fjölmargar íbúðagötur. Unnið hefur verið að því að ryðja íbúðagötur sem eru ekki færar og á það helst við í efri byggðum og jafnvel víða.
Meira ...

Rauð veðurviðvörun fyrir 7. febrúar - Kennsla fer ekki fram í grunnskólum né í húsnæði Listaskólans

06/02/22
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, mánudag 7. febrúar. Meðfylgjandi upplýsingar eru einnig inn á facebook síðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. English and Polish below
Meira ...

Foreldravika í Listaskólanum 3.-7. október

04/02/22Foreldravika í Listaskólanum 3.-7. október
Vikuna 3.-7. október er foreldrum boðið að koma í tíma nemandans til að fylgjast með og/eða ræða við kennarann um námið. Foreldrar geta á margan hátt stutt börn sín í tónlistarnáminu og er þá helst að nefna eftirfarandi þætti úr Aðalnámskrá tónlistarskóla sem beint er til foreldra/forráðamanna:
Meira ...

Forskóladeild stofnuð í Varmárskóla

18/01/22
Haustið 2021 var stofnuð forskóladeild við Listaskóla Mosfellsbæjar og hófst kennsla fyrsta forskólahópsins í Lágafellsskóla haustið 2021. Nú í janúar 2022 verður einnig boðið upp á forskólahóp í Varmárskóla fyrir 6 ára börn.
Meira ...

Fyrsti kennsludagur á nýju ári er þriðjudaginn 3. janúar.

03/01/22Fyrsti kennsludagur á nýju ári er þriðjudaginn 3. janúar.
Listaskólinn óskar öllum gleðilegs árs og þakkar samstarfið á liðnu ári. Kennsla í tónlistardeild Listaskólans hefst þriðjudaginn 3. janúar og vegna sóttvarnarráðstafana og fjölda smita í
Meira ...

Listaskólinn heldur 25 tónleika á aðventunni

30/11/21Listaskólinn heldur 25 tónleika á aðventunni
Stór þáttur í námi nemenda Listaskólans er að koma fram á tónleikum og framundan eru 24 nemendatónleikar Listaskólans á aðventunni. Í ljósi smitvarna verður skipulagi tónleika háttað þannig að 8-14 börn koma fram á hverjum tónleikum og mega 2 gestir fylgja hverju barni.
Meira ...

Framhaldspróf Freys Hlynssonar

30/11/21Framhaldspróf Freys Hlynssonar
Sunnudaginn 28. nóvember hélt Freyr Hlynsson nemandi við Listaskóla Mosfellsbæjar glæsilega framhaldsprófstónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík. Tónleikarnir voru liður í framhaldsprófsáfanga Freys sem hafði áður leikið sömu efnisskrá fyrir prófdómara auk þess að sýna fram tilheyrandi á leikhæfni í tónstigum og tækniæfingum.
Meira ...

Framhaldsprófstónleikar Freys Hlynssonar

22/11/21Framhaldsprófstónleikar Freys Hlynssonar
Framhaldsprófstónleikar Freys Hlynssonar píanónemanda við Listaskóla Mosfellsbæjar verða haldnir í Dómkirkjunni á sunnudag, 28. nóvember kl. 15:00.


Meira ...

Myndlist og tónlist - Myndlistarsýning í Listaskólanum

18/11/21Myndlist og tónlist - Myndlistarsýning í Listaskólanum
Verk nemenda úr Mynlistaskóla Mosfellsbæjar sem sýnd voru í Norræna húsinu þann 9. nóvember sl. hafa nú verið sett upp í Listaskóla Mosfellsbæjar, Háholti 14, 3. hæð.
Meira ...

Ljós:myrkur - Mynd og tónleikar þriðjudaginn 9.11. kl. 18:00 í Norræna húsinu

09/11/21Ljós:myrkur - Mynd og tónleikar þriðjudaginn 9.11. kl. 18:00 í Norræna húsinu
Mynd og tónleikar með myndlistarskóla Mosfellsbæjar þriðjudaginn 9.11. kl. 18:00 í Norræna húsinu.
Meira ...

Síða 3 af 9

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira