logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Suzukideild

Suzukinám er hljóðfæranám sem byggir á móðurmálsaðferð Dr. Shinichi Suzuki. Helstu einkenni þessarar kennsluaðferðar eru:

– Börnin geta byrjað ung eða um þriggja til fimm ára.

– Börnin læra eftir eyra með stöðugri hlustun á námsefnið

– Nótnalestur bætist við síðar

– Foreldrar fylgja með í alla tíma og æfa með börnunum heima

– Námið felst bæði í einkatímum og hóptímum

– Upprifjun er snar þáttur í náminu

– Ýmislegt fleira má nefna, t.d. jákvætt hugarfar og hvatning, börnin

eru látin koma fram á tónleikum mjög snemma, foreldrafræðsla í

byrjun, einbeiting að einu atriði í einu, leikur og gamansemi,

herminám fremur en útskýringar. 

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira