logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

ÖLL KENNSLA FELLUR NIÐUR FRÁ KL 15:00

05/02/25
Öll kennsla á vegum Listaskólans fellur niður eftir kl. 15:00 í dag, miðvikudag 5. feb. þar sem veðurviðvaranir munu breytast í rauða litakóðun þegar líður á daginn. Foreldrar eru beðnir um að sækja sem fyrst þau börn sem kunna að vera í skólanum.
Meira ...

Slæmt veður í kortunum

05/02/25Slæmt veður í kortunum
Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið vegna mikils hvassiveðurs sem spáð er fyrir um næstu tvo daga. Mikilvægt er að foreldrar og forráðafólk í Mosfellsbæ fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Hér má sjá óveðursáætlun og hvað helst ber að hafa í huga: https://www.listmos.is/hagnytt/ Skólastarf fellur ekki niður nema tilkynnt sé um það sérstaklega, þannig að mikilvægt er að fylgjast vel með tilkynningum frá skólum.
Meira ...

Foreldraviðtalsvika í Listaskólanum 20.-24. janúar

18/01/25
Í næstu viku - 20. - 24. janúar er foreldrum boðið að koma í tíma nemandans til að fylgjast með og/eða ræða við kennarann um námið. Tilgangurinn er að skapa tengsl milli forráðamanna nemenda og kennara þeirra, fara yfir námsframvinduna, mikilvægi heimaæfinga og svara spurningum um tónlistarnámið. Foreldrar geta á margan hátt stutt börn sín í tónlistarnáminu, jafnvel þótt þeir hafi sjálfir aldrei lært á hljóðfæri og er þá helst að nefna eftirfarandi þætti úr Aðalnámskrá tónlistarskóla, sem beint er til foreldra/forráðamanna:
Meira ...

UPPTAKTURINN 2025

16/01/25UPPTAKTURINN 2025
Börnum og ungmennum í 5.-10. bekk er heimilt að taka þátt í Upptaktinum og senda inn tónsmíð óháð tónlistarstíl. Þau sem komast áfram taka þátt í tónsmiðjum með nemum úr Listaháskóla Íslands og fagfólki í tónlist. Lengd tónverks skal vera 1-5 mínútur að hámarki, annaðhvort einleiks eða samleiksverk fyrir allt að sjö flytjendur. Hugmyndir skulu berast ekki seinna en 21. febrúar á netfangið upptakturinn@gmail.com með nafni höfundar, aldri, símanúmeri, tölvupóstfangi, grunnskóla, titli verks og verkinu á nótum og/eða MP3 hljóðskrá.
Meira ...

06/01/25
Meira ...

Kennsla eftir jólafrí hefst aftur þann 6. janúar

05/01/25
Starfsfólk Listaskólans óskar öllum Mosfellingum gleðilegs árs með þakklæti fyrir samveruna á liðnu ári. Kennsla hefst aftur eftir jólafrí mánudaginn 6. janúar.
Meira ...

Jólafrí Listaskólans

18/12/24Jólafrí Listaskólans
Jólafrí Listaskólans byrjar á morgun fimmtudaginn 19.desember. Fyrsti kennsludagur eftir jólafrí er mánudagurinn 6. janúar. Gleðileg jól og takk fyrir samveruna á árinu.
Meira ...

Tónleikar hljómsveita í Rytmísku deild Listaskólans í dag miðvikudag, 4.12. kl. 18:00

04/12/24Tónleikar hljómsveita í Rytmísku deild Listaskólans í dag miðvikudag, 4.12. kl. 18:00
Fram koma: Engir strengir Galdrakarlarnir í Mos Rotturnar Gleym mér ei - ásamt Selmu Aftur í tímann
Meira ...

JÓLATÓNLEIKARÖÐ LISTASKÓLANS:

03/12/24JÓLATÓNLEIKARÖÐ LISTASKÓLANS:
Nú er jólatónleikaröð Listaskólans hafin og eru um 20 tónleikar framundan fyrir utan þær heimsóknir sem Listaskólinn fer í með tónlistarflutning víða um bæinn. Skipulag tónleika má sjá hér fyrir neðan:
Meira ...

Listaskóli - kennsla er eftir stundaskrá á morgun þriðjudaginn 29. október

28/10/24
Nemendur Helgafells- og Lágafellsskóla athugi að þar sem þeir skólar eru lokaðir vegna starfsdaga á morgun, þriðjudaginn 29. október, þá fer öll kennsla sem er á á vegum Listaskólans í þessum skólum fram í húsnæði Listaskólans að Háholti 14.
Meira ...

Síða 1 af 15

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira